25. febrúar 2026

Minning sem lifir áfram í hjarta skólans

Þegar útför Önnu Pálu fyrrverandi starfsmanns Heiðarskóla  fór fram síðastliðið sumar afþakkaði fjölskylda hennar blóm og kransa og benti þess í stað á að styrkja frekar Soroptimistaklúbb Keflavíkur, sem Anna Pála var virkur og kær meðlimur í.

Í haust hafði félagið samband við okkur í Heiðarskóla og tilkynnti að það vildi færa skólanum þá upphæð sem safnast hafði og gott betur. Samtals hlaut skólinn styrk að upphæð 1.000.000 króna.

Strax í kjölfarið fórum við að skoða hvernig best væri að nýta styrkinn með það að leiðarljósi að halda minningu Önnu Pálu á lofti með verkefnum sem endurspegla hennar hjartamál. Önnu Pálu var einstaklega umhugað um nemendur skólans. Hún lagði sig fram við að sinna þeim af alúð, hvatti þau til lestrar, studdi við vellíðan þeirra og kom ætíð til móts við þarfir hvers og eins. Hún bar sérstaklega hlýjan hug til unglinganna okkar og fannst mikilvægt að skapa þeim notalegt og öruggt rými innan skólans.

Í gær tók skólinn á móti félagskonum úr Soroptimistaklúbbnum ásamt fjölskyldu Önnu Pálu. Farið var yfir það sem þegar hefur verið gert fyrir styrkinn og gengið með þeim um skólann til að sýna afraksturinn.

Við höfum útbúið notalegt kósýhorn fyrir framan bókasafnið með hægindastólum þar sem nemendur geta sest niður, andað og lesið í ró. Inni á bókasafninu bættum við við stórum sófa, mottu og borði svo enn betra rými skapist fyrir fræðslu og lestur. Yngstu nemendurnir okkar fengu fjögur lestrartjöld þar sem þau geta dregið sig í hlé og sökkt sér í heim bókanna í næði.

Einnig keyptum við búnað í skynörvunarherbergið Heimavelli með fjölbreyttum tækjum sem styðja við vellíðan og þarfir nemenda. Þá höfum við unnið að því að skapa unglingunum okkar sérstakt rými sem ber nú nafnið „Önnuvellir“ í hennar minningu. Þar eru sófar, upphýfingarstöng og dýfustöng, bekkur til stuðnings og hlýlegt umhverfi með myndum og hillum. Við munum halda áfram að byggja það upp af sama kærleika og hún sýndi nemendum sínum.

Minning Önnu Pálu lifir áfram í rýmum sem fyllast af lestri, hlátri, samtölum og ró.

Við í Heiðarskóla erum afar þakklát og hrærð yfir þessum rausnarlega styrk. Til viðbótar ákvað Kalli, ekkill Önnu Pálu og fjölskylda að bæta við góðri upphæð frá fjölskyldunni, sem við tökum við með djúpri þökk og virðingu.

 

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Hnetulaus