7. maí 2026

Minning

Minning.

Bryndís Björg Guðmundsdóttir fyrrverandi starfsmaður í Heiðarskóla verður jarðsungin í dag.  Bryndís Björg lést þann 25. apríl s.l.

Bryndísar verður sárt saknað í skólasamfélaginu í Reykjanesbæ. Við kveðjum einstaka konu og ötula skólamanneskju sem helgaði líf sitt velferð barna og þróun skólastarfs.

Í gegnum farsælan starfsferil starfaði Bryndís Björg meðal annars í Holtaskóla, Heiðarskóla, Akurskóla og síðar sem skólastjóri Myllubakkaskóla frá árinu 2014. Í Heiðarskóla var hún kennari og svo síðar deildarstjóri.

Hvar sem hún kom að störfum naut hún mikillar virðingar fyrir fagmennsku, eldmóð og einlægan áhuga á velferð nemenda og starfsfólks. Hún lagði ríka áherslu á öruggt og heilsusamlegt skólaumhverfi og vann ötullega að framþróun skólastarfs.

Við minnumst Bryndísar með hlýhug og sendum fjölskyldu og aðstandendum okkar dýpstu samúðarkveðjur.

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Hnetulaus