16. nóvember 2015

Menningarstundir í tilefni af Degi íslenskrar tungu

Dagur íslenskrar tungu er í dag 16. nóvember en eins og kunnugt er er það fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar. Í tilefni af deginum fara fram menningarstundur á sal skólans í þessari viku þar sem allir bekkir sýna skemmtiatriði, ýmist fyrir árganginn sem er einu ári yngri eða eldri. Er þá leikið, sungið, dansað, spilað á hljóðfæri og margt fleira. Í dag fóru fram menningarstundir 1. og 2. bekkjar annars vegar og 3. og 4. bekkjar hins vegar. Myndir af menningarstundunum verða settar inn í myndasafn í vikunni.

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Uppbyggingarstefnan