17. nóvember 2014

Menningarstundir í tilefni af Degi íslenskrar tungu

Dagur íslenskrar tungu var í gær, sunnudaginn 16. nóvember, en eins og kunnugt er er það fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar. Í tilefni af deginum fara fram menningarstundur á sal skólans í þessari viku þar sem allar bekkjardeildir sýna skemmtiatriði, ýmist fyrir árganginn sem er einu ári yngri eða eldri. Er þá leikið, sungið, dansað, spilað á hljóðfæri og margt fleira. Í morgun voru haldnar menningarstundir í 9. og 4. bekk. Myndir af menningarstundunum munu verða settar inn í myndasafn í vikunni. 

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Uppbyggingarstefnan