Matthildur Yrsa las upp úr verðlaunabók sinni fyrir nemendur Heiðarskóla
Nýverið fengu nemendur Heiðarskóla sérstaka heimsókn þegar Matthildur Yrsa Sigurðardóttir, nemandi í 9. bekk skólans og rithöfundur, las upp úr bók sinni Síðasti dagurinn fyrir alla bekki skólans.
Síðasti dagurinn fjallar um þá atburði sem urðu í kjölfar náttúruhamfaranna í Grindavík og hafa markað djúp spor í vitund þjóðarinnar. Bókin er einstök að því leyti að hún segir frá þessum atburðum út frá sjónarhóli barns, sjónarhorni sem sjaldan fær að njóta sín í umfjöllun um slíka atburði.
Matthildur Yrsa var aðeins ellefu ára gömul þegar hamfarirnar hófust. Í bókinni segir hún frá upplifun sinni og reynslu í samvinnu við Þórunni Rakel Gylfadóttur. Fyrir verkið hlutu þær Sólfaxa, íslensku barnabókaverðlaunin, árið 2026.
Nemendur og starfsfólk nutu þess að hlýða á upplesturinn og fengu um leið innsýn í mikilvæga sögu sem hefur haft áhrif á marga Íslendinga. Heiðarskóli er afar stoltur af Matthildi Yrsu og óskar henni innilega til hamingju með frábæran árangur og verðskuldaða viðurkenningu.
Við þökkum Matthildi Yrsu kærlega fyrir heimsóknina og fyrir að deila með okkur þessari áhrifamiklu sögu. 📚✨










