19. febrúar 2026

Líf og fjör á öskudegi í Heiðarskóla

Öskudagurinn var haldinn hátíðlegur í gær og heppnaðist hann vel. Mikill metnaður var lagður í búninga í ár og mátti sjá fjölbreyttar og skapandi útfærslur á göngum skólans. Það var sannkallað líf og fjör og gleðin skein úr hverju andliti.
Nemendur gátu valið á milli fjölmargra skemmtilegra stöðva víðs vegar um skólann. Þar má meðal annars nefna pílu, karíókí, armbandsgerð, spil, öskupokagerð, perlur, lita, kubba og Just Dance svo eitthvað sé nefnt. Allir fundu eitthvað við sitt hæfi og var þátttakan frábær.
Hver árgangur fékk einnig úthlutaðan tíma í draugahúsinu sem vakti mikla lukku og spennu meðal nemenda. Þá fengu nemendur einnig að spreyta sig á skólahreystibraut í íþróttahúsinu þar sem kraftur og keppnisskap komu vel í ljós.
Það má með sanni segja að öskudagurinn í Heiðarskóla hafi tekist afar vel í alla staði.

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Hnetulaus