Lið Heiðarskóla vann Fótboltamót grunnskóla Reykjanesbæjar
Lið Heiðarskóla, skipað drengjum í 9. og 10. bekk unnu Fótboltamót grunnskóla Reykjanesbæjar í Reykjaneshöllinni í gær. Auk Heiðarskóla tóku lið úr Akur-, Myllubakka-, Njarðvíkur- og Holtaskóla þátt. Góð stemmning var í höllinni og voru drengirnir að vonum ánægðir með sigurinn.