Lestrarupplifun í sumar
Lestrarupplifun í sumar – Mikilvægi foreldra í lestri barna
Sumarfríið er handan við hornið og með því fylgja kærkomin frí frá skólabekkjum og stundatöflum. En þó að skólinn fari í frí heldur lesturinn áfram og þar gegna foreldrar/forráðamenn lykilhlutverki og með einföldum aðgerðum geta foreldrar haldið við og eflt lestrarfærni barna sinna.
Þetta þarf ekki að vera flókið, að lesa saman kvöldsögur, heimsækja bókasöfn eða leyfa barninu að velja bækur sem það hefur áhuga á getur haft ómetanleg áhrif, bæði á lestrarfærni og á jákvætt viðhorf til lesturs og náms almennt. Þessar samverustundir verða oft líka að dýrmætum gæðastundum sem börnin muna og meta.
Hugmyndir að skemmtilegum lestrarstundum í sumar
📖 Sameiginlegur lestur – Lesið saman og skiptist á að lesa. Það eykur áhuga og skapar notalega stemningu.
📚 Lestraráskoranir – Takið þátt í sumarlestraráskorunum. Við bendum sérstaklega á síðuna www.sumarlestur.is þar sem finna má frábært efni og verkefni fyrir börn og fjölskyldur.
📘 Valfrelsi – Leyfið barninu að velja bækur sem það hefur raunverulegan áhuga á hvort sem það eru sögur, fróðleikur, myndasögur eða tímarit.
💬 Samræður um lestur – Spyrjið barnið út í bókina, hvað það fannst skemmtilegt eða spennandi og hvað það lærði. Samtölin dýpka skilning og vekja lestraráhuga.
Við hvetjum alla foreldra/forráðamenn til að nýta sumarið sem tækifæri til að efla læsi og lestrargleði barna sinna. Með stuðningi og samveru eruð þið að leggja mikilvægan grunn að áframhaldandi velgengni í námi og lífi.
Gleðilegt sumar og góða lestrarferð. 📖🌞