3. janúar 2018

Lestrarátak Ævars vísindamanns 2018

Lestrarátak Ævars vísindamanns hófst 1. janúar og lýkur 1. mars. Hér eru skilaboð til krakkanna frá Ævari:
 
Reglurnar eru þessar:
 
1. Það má lesa hvaða bók sem er.
 
2. Á hvaða tungumáli sem er.
 
3. Hljóðbækur og ef einhver les fyrir þig telst með.
 
NÝ REGLA: 4. Allir krakkar í 1. - 10. bekk mega taka þátt.
 
Fyrir hverjar þrjár bækur sem þið lesið prentið þið út lestrarmiða, fyllið út og skilið á næsta skólabókasafn, sem mun svo koma þeim til skila. Ef einhverjir eru að taka þátt utan skóla (eins og t.d. krakkar sem búa í útlöndum) er hægt að senda lestrarmiðana á:
 
Heimili og skóli, Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík.
 
Í byrjun mars verður dregið úr öllum innsendum lestrarmiðum og fá fimm krakkar í verðlaun að vera persónur í æsispennandi ofurhetjubók eftir Ævar sem kemur út í maí.
 
Í síðustu þremur átökum voru lesnar meira en 177 þúsund bækur.
 
Það verður einstaklega spennandi að sjá hvernig okkur gengur í ár.
 
Áfram lestur!
 
--
 
Við hvetjum alla krakka í Heiðarskóla eindregið til að taka þátt í þessu skemmtilega lestrarverkefni. Nánari upplýsingar má nálgast hér: www.visindamadur.com
 
 
  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Uppbyggingarstefnan