11. desember 2015

Jólahátíð og jólafrí

Föstudaginn 18. desember verður hin árlega jólaskemmtun í skólanum. Hefðin hefur verið að hafa hana þrískipta en í ár verða allir nemendur saman í íþróttahúsinu. Þar munu nemendur í 7. bekk leika jólaguðspjallið, nemendur flytja söng– og tónlistaratriði og svo verður að sjálfsögðu dansað í kringum jólatréð við undirleik Guðmundar Hermannssonar. Að því loknu fer hver bekkur til sinnar heimastofu og heldur stofujól með umsjónarkennara sínum. Þar verður þeim boðið upp á gómsæta bollaköku en nemendur koma sjálfir með drykk að eigin vali. Ekki verður skipst á gjöfum að þessu sinni. Nemendur eiga að mæta kl. 8.50 í heimastofur og áætlað er að skemmtuninni ljúki um kl. 10.30. 

Jólafrí nemenda hefst að lokinni jólahátíð. Skólastarf hefst aftur mánudaginn 4. janúar 2016 samkvæmt stundaskrá.

 

 

 

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Uppbyggingarstefnan