18. desember 2023

Jólahátíð

Miðvikudaginn 20. desember verður hin árlega jólaskemmtun í skólanum. Allir nemendur verða saman í íþróttahúsinu í upphafi. Þar munu nemendur í 7. bekk leika jólaguðspjallið, nemendur flytja söng- og tónlistaratriði og svo verður að sjálfsögðu dansað í kringum jólatréð við undirleik Guðmundar Hermannssonar. Að því loknu fer hver bekkur í sína heimastofu og heldur stofujól með umsjónarkennara sínum. Nemendur mega koma með smákökur eða annað sætabrauð og drykk að eigin vali. Gos er leyfilegt en þó ekki orkudrykkir.
Nemendur eiga að mæta snyrtilega klæddir kl. 8.45 í heimastofur og áætlað er að skemmtuninni ljúki um kl. 10.30. Þennan dag er frístundaheimilið lokað.

Jólafrí nemenda hefst að lokinni jólahátíð. Skólastarf hefst aftur samkvæmt stundaskrá fimmtudaginn 4. janúar 2024.

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Uppbyggingarstefnan