Hvatningarverðlaun Menntaráðs
Hvatningarverðlaun menntaráðs Reykjanesbæjar voru afhent við hátíðlega athöfn þann 3. júní. Verðlaunin eru veitt árlega til að vekja athygli á framúrskarandi verkefnum og starfi sem stuðlar að jákvæðri þróun í skóla- og frístundastarfi bæjarins.
Okkar smíðakennari, Elsa Þóra, hlaut Hvatningarverðlaun menntaráðs Reykjanesbæjar í ár fyrir verkefnið „FabLab samstarf: Eflum sköpunarkraft nemenda“. Verkefnið eflir sköpun, nýsköpun og tæknilæsi nemenda í samstarfi við Fab Lab Suðurnes þar sem nemendur vinna meðal annars með stafræna hönnun, þrívíddarprentun og laserskurð.
Við erum afar stolt af Elsu Þóru hennar starfi og óskum henni innilega til hamingju með verðlaunin 💙
Þrjú önnur frábær verkefni hlutu sérstaka viðurkenningu frá menntaráði:
- „Saman fyrir betri heim“ frá leikskólanum Gimli
- „Öflugt og metnaðarfullt frístundastarf í Ösp“ frá Njarðvíkurskóla
- „Málþroski og hljóðkerfisvitund leikskólabarna – Sögupokar sem kennsluaðferð“ frá leikskólanum Drekadal
Sannarlega frábært og öflugt starf sem er í gangi í skólum Reykjanesbæjar sem við getum öll verið stolt af 🩷

Elsa Þóra

Elsa Þóra og Berglind formaður Menntaráðs

Elsa Þóra og Lóa Björg skólastjóri Heiðarskóla

Vilhjálmur bæjarstjóri, allir sem fengu viðurkenningu og Berglind formaður menntaráðs.


Sýnishorn af verkefnum nemenda; Gestabókin.





