Heimsókn í slökkvistöðina
Nemendur í Náttúrufræðitilraunum fóru í heimsókn í slökkvistöðina þar sem Gunnar Jón Ólafsson verkefnastjóri í eldvarnaeftirliti tók á móti þeim. Nemendur byrjuðu í aðgerðastjórnunarrými, sem aðeins er notað í stórum verkefnum þar sem allir viðbragðsaðilar vinna saman. Því næst fengu þau kynningu á sjúkrabílum, slökkviliðsbílum og öðrum tækjum sem slökkviliðið á og fengu að prófa að sprauta úr vatnsslöngvu með þrýstingi. Að lokum skoðuðu þau líkamsræktarstöðina og tóku aðeins í lóðin. Nemendur voru mjög áhugasöm og vita í dag hvað uppáhalds öryggistæki allra slökkviliðsmanna er.







