14. október 2026

Heilsu- og forvarnardagar í Heiðarskóla

Sæl öll! 

Heilsueflandi teyminu langar til að þakka ykkur öllum fyrir fyrir góða Heilsu- og forvarnardaga. Við upplifðum góða stemmingu hjá nemendum og kennurum í vikunni og viljum við þakka kærlega fyrir samvinnuna, sveigjanleikann og jákvæða viðhorfið sem þið sýnduð alla vikuna ❤️

Eins og venjan hefur verið fengu árgangarnir fyrirlestra í tilefni hennar og voru þeir fjölbreyttir þetta árið. Lyfjaeftirlitið kom í heimsókn og hitti unglingastigið, nemendur í 10.bekk fengu skyndihjálparnámskeið frá Brunavörnum Suðurnesja, Pálmar Ragnarsson hitti yngsta stigið, svæðisstjórar UMFÍ hittu 4., 5., 7., og  9.bekk og svo fengum við Lögregluna til að ræða mikilvægi hjálmnotkunar við 6. og 7.bekk. 
Áttundu bekkir skólans öttu kappi við hvorn annan í húsaleiknum og var hart barist um Húsabikarinn sem endaði með sigri 8.ÞI. 🏆

Ólympíuhlaupið var á sínum stað en í nýjum búning í ár. Við styttum hlaupaleiðina, styttum tímann sem hlaupið var og skiptum skólanum upp í tvennt þar sem 1.-4.bekkur hljóp sér og 5.-10.bekkur sér. Að okkar mati kom þessi útfærsla mjög vel út. 🏃‍➡️🏃‍♀️

Sjá myndir í myndasafni

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Hnetulaus