Heiðarskóli í 4. sæti í Skólahreysti
Laugardaginn 23. maí fóru úrslit Skólahreystis fram í íþróttamiðstöðinni að Varmá í Mosfellsbæ. Keppnin var afar spennandi og jöfn allt til loka og stóðu keppendur Heiðarskóla sig með miklum glæsibrag.
Heiðarskóli hafnaði í 4. sæti sem er frábær árangur í þessari sterku keppni þar sem munurinn á milli efstu liða var lítill. Keppendur okkar sýndu mikinn styrk, þrautseigju og liðsheild og voru skólanum til mikils sóma.
Ekki síður var ánægjulegt að sjá þann öfluga stuðning sem keppendur fengu frá samnemendum sínum. Fjöldi nemenda á unglingastigi mætti á staðinn og skapaði frábæra stemningu sem hjálpaði keppendum að gefa allt sitt í keppnina.
Við erum afar stolt af keppendum okkar og öllum þeim sem lögðu sitt af mörkum til að gera þennan dag eftirminnilegan.
Innilega til hamingju með glæsilegan árangur og áfram Heiðarskóli! 💪





