10. september 2026

Heiðarskóli er orðin Unesco skóli.

Heiðarskóli hefur nú formlega hlotið viðurkenningu sem UNESCO-skóli eftir ítarlegt umsóknarferli. Í tilefni þessara tímamóta heimsótti Sigrún Svafa Ólafsdóttir, verkefnastjóri fræðslumála hjá Reykjanes Jarðvangi og GeoCamp Iceland, skólann og afhenti meðal annars bækur og fræðsluefni frá Reykjanes Geopark, sem skólinn mun nýta í starfi sínu.

Unesco eru samtök sem hjálpa löndum að vinna saman og kenna börnum um frið og virðingu. Unesco skólar eru skólar um allan heim sem gera verkefni um náttúruna, heiminn og hvernig við getum við getum gert heiminn betri fyrir alla. Nemendur læra um sameinuðu þjóðirnar og heimsmarkmiðin sem eru markmið um betri og sanngjarnari heim. Hér má sjá meira um Unesco skóla. Unesco skólar

Sigrún Svafa afhenti skólanum einnig snjallsjónauka sem Sævar Helgi Bragason, vísindamiðlari gaf. Hver grunnskóli í Reykjanesbæ fékk einn sjónauka að gjöf. Sjónaukarnir henta vel til að skoða himingeiminn, svo sem sólina, tunglið og reikistjörnur, en einnig fugla, dýr og önnur fyrirbæri í náttúrunni. Hægt er að taka bæði ljósmyndir og myndskeið með sjónaukunum, sem opnar fjölbreytta möguleika í lifandi og skapandi vísindafræðslu. Gjöfin er að frumkvæði Reykjanes jarðvangs og er styrkt af Kadeco og atNorth gagnaverinu.

Í haust verða haldin námskeið fyrir kennara um notkun sjónaukanna og stefnt er að því að útbúa námsefni þeim til stuðnings. Vonir standa til að verkefnið efli áhuga barna á náttúru, vísindum og undrum alheimsins.

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Hnetulaus