5. júní 2026

Heiðarleikar og skólaslit

Heiðarleikar og skólaslit 2026

Nú styttist í skólalok hjá okkur í Heiðarskóla.

Heiðarleikar – þriðjudaginn 9. júní

Þriðjudaginn 9. júní verður skertur nemendadagur þar sem hinir árlegu Heiðarleikar fara fram. Nemendur taka þátt í fjölbreyttum og skemmtilegum leikjum og  endum við daginn á grillveislu í boði foreldrafélagsins.

Dagskrá:

  • Kl. 09:00 – Nemendur mæta í skólann
  • Kl. 09:30 – Heiðarleikar hefjast
  • Kl. 10:50 – Grill í boði foreldrafélagsins
  • Kl. 11:20 – Skóladegi lýkur

Foreldrar og forráðamenn eru hjartanlega velkomin að koma og njóta grillveislunnar með okkur.

Frístund verður opin þennan dag og hefst strax að lokinni hátíð.

Skólaslit – miðvikudaginn 10. júní

Skólaslit fara fram miðvikudaginn 10. júní samkvæmt eftirfarandi dagskrá:

  • Kl. 09:00 – 1., 2. og 3. bekkur
  • Kl. 10:00 – 4., 5. og 6. bekkur
  • Kl. 11:00 – 7., 8. og 9. bekkur
  • Kl. 13:00 – Útskrift 10. bekkjar

Að lokinni útskrift 10. bekkinga verður nemendum og foreldrum þeirra boðið til kaffisamsætis.

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Hnetulaus