Heiðarleikar
Heiðarleikar Heiðarskóla fóru fram í gær við mikla gleði og eftirvæntingu. Nemendur kepptu í fjölbreyttum og óhefðbundnum íþróttagreinum þar sem áherslan var á samvinnu, þátttöku og góða skemmtun.
Stemmningin var gífurleg allan daginn og nemendur sýndu frábæran keppnisanda um leið og þeir hvöttu hvert annað áfram. Það var greinilegt að allir skemmtu sér konunglega og nutu þess að taka þátt í þessum skemmtilega viðburði.
Sigurvegarar dagsins voru:
- 2. bekkur á yngsta stigi
- 7. bekkur á miðstigi
- 9. bekkur á elsta stigi
Að auki fékk 10. bekkur sérstök verðlaun fyrir bestu stemninguna en þau létu sannarlega í sér heyra og sköpuðu frábæra umgjörð um leikana.
Á meðan beðið var eftir úrslitunum steig Dagur Stefán Alexandersson í 2. Bekk á svið og flutti lagið sitt Fyrsta markið mitt við frábærar undirtektir. Nemendur og starfsfólk tóku vel undir og skapaðist sannkölluð hátíðarstemning.
Að lokum endaði dagurinn á grilluðum pylsum í boði foreldrafélags Heiðarskóla sem nutu mikilla vinsælda meðal nemenda og starfsfólks. Við kunnum foreldrafélaginu bestu þakkir fyrir stuðninginn og þátt sinn í að gera daginn enn skemmtilegri.





