Heiðarleikar
Í dag fóru fram hinir árlegu Heiðarleikar Heiðarskóla við góðar aðstæður og mikið fjör. Nemendur í öllum bekkjardeildum tóku þátt í fjölbreyttum og óhefðbundnum íþróttagreinum þar sem gleðin og samvinnan voru í forgrunni.
Keppt var meðal annars í skeiðargöngu, bolaskiptum, hitta í fötu, pútti, fótbolta, kastað í keilur, möndluspýtingu og pokahlaupi svo eitthvað sé nefnt. Mikill áhugi var hjá nemendum og myndaðist skemmtileg stemning á skólalóðinni.
- 1. bekkur hlaut viðurkenningu fyrir mestu stemninguna.
- 10. bekkur fékk viðurkenningu fyrir besta búninginn.
- 2. bekkur sigraði Heiðarleikana á yngsta stigi,
- 6. bekkur vann á miðstigi,
- 10. bekkur sigraði á elsta stigi.
Að loknum leikunum bauð Foreldrafélag Heiðarskóla öllum þátttakendum og gestum upp á grillaðar pylsur. Þá mættu einnig fulltrúar frá Leikfélagi Keflavíkur og fluttu nokkur lög úr vinsæla barnaleikritinu Latibær sem vakti mikla lukku meðal nemenda og starfsfólks.
Heiðarleikarnir í ár voru sannarlega gleðilegir og við kveðjum skólaárið með þakklæti og bros á vör.
Myndir frá leikunum má sjá í myndasafni.