23. mars 2026

Glæsilegur hátíðisdagur

Árshátíð Heiðarskóla 2026 – Glæsilegur hátíðisdagur hjá 1.–10. bekk

Síðastliðinn fimmtudag hélt Heiðarskóli árlega nemendaárshátíð sína fyrir 1.- 7. bekk þar sem nemendur stigu á svið og sýndu fjölbreytt og skemmtileg atriði. Þema árshátíðarinnar í ár var Kvikmyndir og söngleikir og var ljóst að bæði nemendur og kennarar höfðu lagt mikinn metnað í undirbúninginn.

Á fimmtudagskvöldinu var árshátíð unglinganna, 8.– 10. bekkjar. Þar var leikritið Hæ skúl músíkal frumsýnt við frábærar undirtektir. Leikstjórarnir þær Guðný Kristjánsdóttir og Brynja Ýr Júlíusdóttir hafa náð fram því allra besta í nemendum. Nemendur stóðu sig með mikilli prýði og skiluðu kraftmikilli, fyndinni og vel útfærðri sýningu sem fékk áhorfendur til að hlæja, klappa og syngja með.

Að sýningu lokinni tók við danspartý þar sem nemendur dönsuðu, spjölluðu og nutu kvöldsins ásamt kennurum sínum fram eftir kvöldi.

Á föstudeginum komu svo foreldrar og forráðamenn í heimsókn og fengu að njóta atriðanna með börnunum sínum.

Árshátíð 1.– 4. bekkjar

Yngstu nemendur skólans hófu hátíðina með líflegu og litríku atriði, Partý í Hálsaskógi, sem fékk salinn strax til að brosa.

Nemendur í 2. bekk leiddu áhorfendur inn í töfrandi heim Astrid Lindgren og stóðu sig afburðavel.

  1. bekkur var með þrjú ólík atriði,
  • Leikþátt úr Latabæ
  • Söngatriðið Rokkum öll í sama liði
  • Leik- og söngþátt úr Ávaxtakörfunni

Allir hóparnir skiluðu glæsilegum flutningi.

Að lokum steig 4. bekkur á svið með kraftmikinn söng- og leikþátt úr Grease sem fékk góðar undirtektir.

Að loknum atriðum bauð skólinn gestum að hitta börnin sín og gæða sér á kaffi og skúffuköku.

Árshátíð 5.–7. bekkjar

Eldri nemendur héldu uppi fjörinu síðar um daginn með fjölbreyttum og metnaðarfullum atriðum.

Atriði 5. bekkjar var í þremur þáttum og sýndu þau mikla danshæfileika á sviðinu með atriðið Stjörnur á hvíta tjaldinu.

  1. bekkur var með tvö ólík atriði,
  • 6.ÁKG sýndi leikþátt úr Titanic
  • 6.SÁH flutti söngatriði úr Grease

Bæði atriðin voru vel unnin og skemmtileg.

Að lokum steig 7. bekkur á svið með nokkur atriði,

  • 7.GS sýndi þrjá stutta leikþætti úr þekktum kvikmyndum
  • 7.ÞJ flutti atriðið Virial sem vakti mikla kátínu og hlátur

Að loknum atriðum bauð skólinn gestum að hitta börnin sín og gæða sér á kaffi og skúffuköku.

Árshátíð Heiðarskóla 2026 var einstaklega vel heppnuð og bar þess merki að nemendur, kennarar og starfsfólk höfðu lagt hjarta sitt í undirbúninginn. Skólinn þakkar öllum gestum kærlega fyrir komuna og hlakkar til næstu hátíðar.

 

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Hnetulaus