20. október 2026

Frábær árangur í Svakalegu lestrarkeppninni!

Skólinn okkar tók þátt í Svakalegu lestrarkeppninni sem er lestrarkeppni fyrir nemendur í 1.–7. bekk. Alls tóku 108 skólar þátt. Nemendur stóðu sig með mikilli prýði og lásu samtals 100.113 mínútur en það gera 365 mínútur að meðaltali á nemanda!

Innan skólans var það 2. bekkur sem las flestar mínútur á hvern nemanda á yngsta stigi en þau lásu að meðaltali 504 mínútur á nemanda. Á miðstigi var það 6. bekkur en þau lásu að meðaltali 482 mínútur á nemanda.

Við erum afar stolt af öllum nemendum okkar og þeim frábæra árangri sem þeir náðu. Við hvetjum þau öll til að halda áfram að vera dugleg að lesa og njóta þess að ferðast um ævintýraheim bókanna!

Til hamingju með frábæran árangur!

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Hnetulaus