4. september 2026

Eigið dásamlega Ljósanæturhelgi.

Setning Ljósanætur var í gær fimmtudag þar sem 3., 7. og 10. bekkur gengu saman í skrúðgarðinn og sameinuðust öðrum skólum í Reykjanesbæ. Arnór Sölvason stýrði dagskránni, Vilhjálmur Árnason, bæjarstjóri, setti hátíðina, Ljósanæturfáninn var dreginn að húni, Páll Óskar söng nokkur lög við mikinn fögnuð viðstaddra og okkar maður Dagur í 3. bekk tók lagið. Setningunni lauk með því að allir sungu saman Ljósanæturlagið.

Í dag föstudag var skertur nemendadagur hjá okkur í Heiðarskóla. Farið var í göngutúr um hverfið með jákvæð skilaboð til nágranna okkar. Einnig var farið í hópleiki, bingó og sumir voru með andlitsmálun. Að lokum sameinuðumst við öll nemendur, starfsfólk og elsta deildin á Heiðarseli í brekkusöng sem Eiður trúbador stýrði vel. Þar tók Dagur okkar aftur lagið 💙  Veðrið lék við okkur og skemmtu allir sér frábærlega.

Við vonum að þið eigið öll dásamlega Ljósanæturhelgi í faðmi fjölskyldu og vina.

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Hnetulaus