16. nóvember 2018

Dagur íslenskrar tungu

Dagur íslenskrar tungu er í dag 16. nóvember, á fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar. Eins og venja er fara fram menningarstundir á sal skólans í tilefni af deginum. Allir bekkir eða árgangar sýna skemmtiatriði þar sem íslenskan okkar er í forgrunni, ýmist fyrir árganginn sem er einu ári yngri eða eldri. Er þá leikið, sungið, dansað, spilað á hljóðfæri og margt fleira. Í dag fóru fram menningarstundir 1. og 2. bekkjar,  3. og 4. bekkjar og 5. og 6. bekkjar. Á mánudaginn er svo röðin komin að 7. og 8. bekk og 9. og 10. bekk. Myndir af menningarstundunum verða settar inn í myndasafn á heimasíðu á næstu dögum.

 

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Uppbyggingarstefnan