10. júní 2026

Blái herinn í heimsókn

Þriðjudaginn 2. júní fékk 4. bekkur skemmtilega og fræðandi heimsókn frá Tomma Knúts úr Bláa hernum.

Blái herinn eru umhverfisverndarsamtök sem leggja áherslu á baráttuna gegn plastmengun í hafinu með hreinsunarstörfum, fræðslu og vitundarvakningu. Tommi sagði nemendum frá starfi sínu sem kafari og deildi sögum af köfunarferðum sínum víðs vegar um heiminn. Þar hefur hann séð margt sem á ekki heima í sjónum en einnig fundið ýmsa áhugaverða muni og náttúrufyrirbæri.

Tommi sýndi nemendum fjölbreytta gripi sem fundist hafa í eða við sjóinn og fengu þau að skoða þá og snerta. Þar mátti meðal annars sjá kuðunga, hákarlabein, inniskó, glerflösku og kjálkabein úr kú.

Með skemmtilegum sögum og fræðslu vakti Tommi nemendur til umhugsunar um mikilvægi þess að vernda náttúruna og halda umhverfinu hreinu.

Þetta var virkilega fræðandi og skemmtileg heimsókn sem vakti mikinn áhuga meðal nemenda.

Við þökkum Tomma Knúts kærlega fyrir komuna og frábæra fræðslu.

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Hnetulaus