26. febrúar 2015

Benjamín Jafet og Eva María í úrslit Stóru upplestrarkeppninnar

Í dag voru þau Benjamín Jafet Sigurðarson og Eva María Davíðsdóttir valin úr hópi 9 nemenda í 7.bekk til að vera fulltrúar Heiðarskóla í Stóru upplestrarkeppninni sem fram fer í Duus húsum 24. mars nk. Aðrir keppendur voru þau Margrét Arna, Tómas Elí, Þórunn María, Bjarni Már, María Tinna, Ragnar Ingi og Ingibjörg Birta. Öll stóðu þau sig með stakri prýði og reyndist dómnefndinni það verkefni að velja aðeins tvo fulltrúa afar erfitt. Dómnefndina skipuðu þau Sóley Halla skólastjóri, Gunnar Þór Jónsson fyrrverandi skólastjóri Heiðarskóla og Guðmunda Lára Guðmundsdóttir skólafulltrúi Reykjanesbæjar. Allir nemendur í 7. bekk hafa fengið góða þjálfun í upplestri á undanförnum vikum og mun sú reynsla vafalaust nýtast þeim vel.

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Uppbyggingarstefnan