16. mars 2026

Árshátíð Heiðarskóla 2026

Nú er komið að árlegri árshátíð skólans. Nemendur hafa s.l. vikur verið að undirbúa atriði, skreyta skólann og vinna að ýmsum verkefnum tengt árshátíðinni.
Dagskráin er eftirfarandi:

Yngsta- og miðstig munu halda sína sýningu á föstudaginn, 20. mars:
1.-4. bekkur:
Mæting: kl. 8:40
Sýning hefst: kl. 9:00
5.-7. bekkur:
Mæting: kl. 10:40
Sýning hefst: kl. 11:00
Að lokinni árshátíð hjá yngsta stigi og miðstigi verður skúffukafa í boði og kaffi fyrir þá sem vilja. Vinsamlegast athugið að nemendur koma með drykk að eigin vali með sér.
Skóladegi lýkur að lokinni árshátíð.

Unglingastigið verður með sína árshátíð á fimmtudagskvöldið, 19. mars. Þeir munu sjá söngleikinn Hæ Skúl Mjúsikal og svo verður DJ-ball að leiksýningu lokinni.
8.-10. bekkur:
Mæting: kl. 19:20
Sýning hefst: kl. 19:30
Diskótek: kl. 20:40-22:30
Það verður sjoppa starfrækt á staðnum.
Þennan fimmtudag verður tvöfaldur nemendadagur hjá unglingastiginu. Þeir mæta í skólann að morgni og svo aftur um kvöldið. Það er því ekki skóladagur á föstudeginum hjá þeim. Á móti er mikilvægt að allir mæti á árshátíðina um kvöldið, umsjónakennarar taka mætingu.

Við hlökkum mikið til að sjá ykkur öll á þessum glæsilegu viðburðum!


  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Hnetulaus