10. júní 2026

Árlegt fótbolta- og brennómót 10. bekkjar og kennara

Í síðustu viku fór fram hið árlega fótbolta- og brennómót milli 10. bekkinga og kennara. Mikil stemning var í salnum og fengu nemendur í 7.–9. bekk að fylgjast með og hvetja sitt lið áfram.

Keppnin var hörð en skemmtileg. Kennarar höfðu betur í fótboltanum en stúlkurnar í 10. bekk sýndu frábæra takta í brennó og sigruðu kennarana þar.

Eins og alltaf var mikið um hlátur, keppnisskap og góð skemmtun. Það sem skiptir þó mestu máli er að enginn slasaðist og allir skemmtu sér konunglega.

Þessi skemmtilega hefð er einn af hápunktum ársins hjá bæði nemendum og starfsfólki.

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Hnetulaus