4. maí 2026

Alþjóðlegi dagur listarinnar

Alþjóðlegi dagur listarinnar (World Art Day) er haldinn hátíðlegur árlega þann 15. apríl til að efla vitund um skapandi listir um allan heim. Dagurinn var stofnaður af UNESCO og Alþjóðasambandi listamanna árið 2019 og er gjarnan merktur með sýningum og viðburðum þar sem listamenn sýna verk sín.

Dagsetningin 15. apríl er ekki tilviljun en þann dag árið 1452 fæddist Leonardo da Vinci, sem er ein þekktasta táknmynd listsköpunar og fjölhæfni í sögunni.

Í tilefni dagsins fengu nemendur skólans að prófa að vinna með eggtemperu líkt og Leonardo da Vinci gerði á sínum tíma. Nemendur bjuggu sjálfir til málninguna úr eggjarauðu, vatni og litardufti  alveg eins og gert var í gamla daga áður en þekjumálning og akrýlmálning komu til sögunnar.

Nemendum fannst afar spennandi að útbúa eigin málningu og mála með henni og verkefnið vakti bæði forvitni og sköpunargleði hjá þeim eins og sjá má á verkum þeirra. 

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Hnetulaus