Alþjóðadagur læsis í Heiðarskóla
Í tilefni af Alþjóðadegi læsis 8.september var skólastarfið brotið upp í Heiðarskóla og nemendur frá 1.–10. bekk tóku þátt í fjölbreyttum og skemmtilegum læsisverkefnum.
Dagurinn hófst á sameiginlegri lestrarstund þar sem nemendur og starfsfólk lögðu önnur verkefni til hliðar og gáfu sér tíma til að lesa. Þaðan tók við fjölbreytt dagskrá þar sem unnið var með læsi í víðum skilningi, lestur, orðaforða, sköpun, tjáningu, samvinnu og hreyfingu.
Yngri nemendur spreyttu sig meðal annars í sögusmiðju þar sem þeir fengu handahófskennd orð og þurftu að flétta þau saman í sögu. Eldri nemendur tókust á við ýmsar læsisáskoranir, léku sér með orð, setningar og fyrirsagnir. Læsið rataði líka í verklegu greinarnar. Í sundi köfuðu nemendur eftir orðum og pöruðu þau við orð á bingóspjaldi og í íþróttum var farið í læsishlaup þar sem nemendur þurftu að finna orð og para þau saman, þannig fóru lestur, orðaforði og hreyfing vel saman.
Það var gaman að sjá allan skólann taka þátt og læsið birtast með svo fjölbreyttum hætti. Dagurinn sýndi okkur vel að læsi á sér stað alls staðar, ekki bara þegar við sitjum með bók í hönd.
Sjá myndir í myndasafni.





