27. apríl 2018

85 þúsund til styrktar BUGL

Þriðjudaginn 24. apríl var sérstök styrktarsýning á söngleiknum Gleðipinnum og fýlupúkum sem nemendur af unglingastigi hafa sýnt á sal skólans að undanförnu. Leikarahópurinn sjálfur lagði það til við leikstjórana sína að láta ágóðann af aukasýningu renna til BUGL, barna og unglingageðdeildar Landsspítalans. Ágóði sýningarinnar var hvorki meira né minna en 85.000 kr. Krakkarnir voru að vonum glaðir og ákaflega stoltir af þessu góða framtaki sínu. Þeir eiga sannarlega hrós skilið og skólinn er þeim og leikstjórum þeirra afar þakklátur fyrir vandaðar og skemmtilegar leiksýningar.

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Uppbyggingarstefnan