Nemendafélag/nemendaráð
Allir nemendur skólans eru í nemendafélagi skólans nema að þeir óski eftir öðru. Nemendur úr 8.-10. bekk skipa síðan nemendaráð Heiðarskóla. Þeir sem hafa áhuga á að starfa í nemendaráði sækja um það að hausti. Formaður nemendaráðs er valinn úr þeim 10. bekkingum sem nemendaráð skipa. Tveir fulltrúar Heiðarskóla eru skipaðir ár hvert í unglingaráð Fjörheima.
Nemendaráð vinnur m.a. að félags-, hagsmuna- og velferðamálum nemenda. Það skipuleggur og hefur umsjón með íþróttastarfi og íþróttakeppnum innan skólans og við aðra skóla.
Það fær skólanámskrá til kynningar og einnig ef fyrirhugaðar eru meiriháttar breytingar á skólahaldinu. Skólastjóri sér til þess að nemendaráð fái aðstoð eftir þörfum og fundar reglulega með ráðinu.
Nemendaráð skipuleggur félagsstarf í skólanum ásamt umsjónarmönnum félagsstarfa. Ráðið vinnur á öllum skemmtunum og það kemur fram sem fulltrúi nemenda. Nemendafélag skólans setur sér starfsreglur, m.a. um kosningu í stjórn félagsins og kosningu fulltrúa í skólaráð en samkv. grunnskólalögum frá 2008 sitja tveir nemendur skólans í skólaráði (sjá skólaráð bls. 28).
Starf nemenda í nemendaráði er metið sem ein valgrein.
Dæmi um helstu viðburði á skólaárinu:
Ýmis konar klúbbar
Sameiginlegt diskótek fyrir 5. – 7. bekk
Íþróttamót milli skóla og innan skóla
Diskótek og opin hús fyrir nemendur Heiðarskóla
Bingó
Jólaföndurdagur foreldrafélagsins
Jólahátíð
Árshátíð
Gettu enn betur
Leikhúsferð
Umsjónarmaður félagsstarfs vinnur áætlanir um félagsstarfsemina í samráði við nemendaráð og íþróttaráð. Einnig er haft samstarf við tómstundaleiðbeinendur í öðrum grunnskólum Reykjanesbæjar.
Markmið skólans er að foreldrar verði virkir þátttakendur í félagsstarfi og taki þátt í undirbúningi og framkvæmd starfsins. Foreldrar eru jafnframt hvattir til þess að standa fyrir bekkjarskemmtunum og öðru félagsstarfi.
Skipulagt félagsstarf er í Heiðarskóla fyrir mið- og unglingastig. Þar fylgir 7. bekkur miðstiginu en í klúbbastarfi er miðað við að 7.-10. bekkur starfi saman. Einstök námskeið og klúbbar eru í sumum tilfellum opnir öðrum árgöngum. Nokkrar skipulagðar skemmtanir eru haldnar fyrir yngsta stigið.
Tekið er tillit til útivistarreglna varðandi tímalengd og tímasetningu skemmtana.
Miðað er við eftirfarandi tímasetningar.
. 4.-5. bekkur 17:00-19:00
. 6.-7. bekkur 19:30-21:30
. 8.-10. bekkur 20:30-23:00
Minnt er á að skólareglur gilda í félagsstarfi nemenda. Brot á reglunum jafngildir broti á skólareglum á skólatíma.