9. desember 2019

Veðrið þriðjudaginn 10. desember

Á morgun, þriðjudaginn 10. desember, er spáð vondu veðri. Við biðjum foreldra að fylgjast vel með veðurspám og vera viðbúna að þurfa að sækja börnin þegar skóla lýkur ef veðurspá gengur eftir.

Þegar veðurspár gefa til kynna að óveður sé í aðsigi á Suðurnesjum fylgjast lögreglan og almannavarnir gaumgæfilega með, hafa samstarf við skólana og gefa út viðvaranir til almennings, gerist þess þörf.

Mikilvægt er að foreldrar sjálfir fylgist með veðri og veðurspám og hagi sér í samræmi við aðstæður hverju sinni.

Foreldrar leggja sjálfir mat á hvort fylgja þurfi barni í og úr skóla þótt engin tilkynning hafi borist frá yfirvöldum. Meti foreldrar aðstæður svo að ekki sé óhætt að börn þeirra sæki skóla þá skulu þeir tilkynna skólanum það og lítur skólinn á slík tilvik sem eðlileg forföll.

Við svona aðstæður eru skólarnir opnir og þar er öruggt skjól fyrir börnin.

  • Foreldrafélag grunnskólanna í Reykjanesbæ
  • Mentor
  • Reykjanesbær
  • Uppbyggingarstefnan