Í stefnu skólans er lögð sú skylda á herðar starfsmanna skólans og foreldra að vera vakandi fyrir líðan og velferð nemenda. Mikilvægt er að koma tilkynningum um einelti sem allra fyrst til umsjónarkennara svo hægt sé að leysa málin á farsælan hátt með hagsmuni allra nemenda að leiðarljósi.
Forvarnarstarf gegn einelti
Heiðarskóli vinnur samkvæmt kerfi Olweusar til að fyrirbyggja einelti með fræðslu fyrir nemendur og starfsfólk. Bekkjarfundir eru haldnir reglulega til að fyrirbyggja einelti.
Reglulega eru gerðar kannanir á því hvort að nemendur hafi orðið fyrir einelti. Niðurstöður þessara kannana eru ræddar í starfsmannahópnum og brugðist við á skipulegan hátt ef um einelti er að ræða. Niðurstöðurnar eru einnig kynntar í skólaráði.
Markmið:
Að einelti þrífist ekki í Heiðarskóla.
Að í Heiðarskóla séu alltaf nægilega margir fullorðnir í eftirlitsstörfum.
Að Heiðarskóli bjóði nemendum upp á vel útbúið og aðlaðandi umhverfi.
Að þegar einelti kemur upp sé alltaf brugðist við því með skipulögðum aðgerðum.
Íhlutun:
Ef upp koma atvik sem gætu verið einelti á starfsmaður strax að bregðast við og stöva það. Nauðsynlegt er að hafa afskipti af allri óæskilegri hegðun. Viðhorf og áræðni kennara/starfsmanna skiptir höfuðmáli í baráttunni við einelti. Að sleppa íhlutun eru skilaboð til nemenda um að viðkomandi sætti sig við atferlið.
Samhæfing:
Allir kennarar/starfsmenn eiga að sýna sanngjörn viðbrögð og vera sjálfum sér samkvæmir frá einum degi til annars.
Tilkynning um einelti:
Mikilvægt er að þeir sem hafa grun um að einelti eigi sér stað tilkynni það skólanum á þar til gerðum eyðublöðum. Eyðublaðið má finna með því að smella hér!
Vinnuferlar skólans:
Vinnuferill 1 - Grunur um einelti
Vinnuferill 2 - Áframhaldandi vinna