Skólareglur
Slóð: Skólareglur

Skólareglur

Í Heiðarskóla er lögð áhersla á jákvæð samskipti milli allra sem þar starfa: nemenda, kennara og alls starfsfólks. Lögð er áhersla á að nemendur fái jákvæða og uppbyggjandi leiðsögn varðandi hegðun og framkomu og áhersla lögð á gagnkvæma virðingu og tillitssemi.
Lögum samkvæmt skulu skólar setja skólareglur sem skylt er að fara eftir. Til að starfsandi og skólabragur sé sem bestur í okkar skóla höfum við sett okkur fáar og skýrar reglur. Einnig kemur þar skýrt fram hvernig brugðist er við agabrotum.  

Skólareglur Heiðarskóla gilda hvar sem nemendur eru á vegum skólans, hvort heldur í kennslu, innan veggja skólans eða utan, á skólaskemmtunum, á skólalóð, vettvangsferðum, félagsstarfi eða ferðalögum.

1. Við mætum stundvíslega og stundum námið af bestu getu.
2. Við komum fram af kurteisi og tillitssemi og förum að fyrirmælum starfsfólks.
3. Við göngum vel um og stofnum ekki öryggi fólks í hættu.
4. Við hugum vel að heilsu okkar og neytum ekki tóbaks, áfengis eða ólöglegra vímuefna.


Nánari lýsing á skólareglum   

1. Stundvísi.  Mikilvægt er að nemendur komi á réttum tíma í kennslustund. Ætlast er til að foreldrar hringi daglega og tilkynni veikindi og/eða seinkomur.  Um lengri leyfi en einn dag þarf að sækja skriflega til skólastjórnenda. Fjarvist er heimilt að gefa, mæti nemandi eftir að 15 mínútur eru búnar af kennslustundinni. Yfirlit yfir ástundun nemenda er hægt að nálgast á Fjölskylduvef Mentors.
 Nám.  Nám er vinna sem ætlast er til að nemendur skili af sér, jafnt í skóla sem heima. Kennarar vinna að því með jákvæðum aga og í samráði við forráðamenn að nemendur virði kennslustundir sem dýrmætan vinnutíma.  Kennari fylgist með námsframvindu og hegðun nemenda sinna og gerir ráðstafanir í samræmi við skólareglur ef út af ber.
 Brot.  Ef nemandi verður uppvís að skila verkefni og/eða ritgerð, sem aðrir hafa samið, fær viðkomandi einkunnina núll fyrir verkefnið og eru foreldrar/forráðamenn upplýstir um málið.  Það sama á við ef nemandi verður uppvís að því að svindla á prófum.

2. Kurteisi.  Það er sameiginlegt markmið skólans og heimilanna að rækta með börnum og unglingum almenna kurteisi og viðurkenndar samskiptareglur manna í milli. 
Við komum fram við aðra, eins og við viljum að aðrir komi fram við okkur. Ef nemandi er staðinn að því að skaða aðra nemendur, eyðileggja vinnu eða leiki er hann tekinn úr aðstæðum og úrræði fundin til bóta.
Yfirhafnir. Við erum ekki með höfuðföt, utanyfirflíkur, o.þ.h. í kennslutíma, í matsal eða á samkomum á sal skólans.
Tæki.  Í kennslustundum eiga nemendur ekki að vera með ýmis tæki sem tengjast ekki náminu og valda truflun. Notkun hvers kyns myndavéla er með öllu óheimil á skólatíma, nema með sérstöku leyfi kennara.  Verðmæti á að láta geyma hjá baðverði í íþróttahúsi þegar nemendur fara í íþróttir og sund.

3. Umgengni.  Nemendur temji sér góða umgengni í skólanum, s.s. í skólastofunni, matsal, á göngum og skólalóð.  Ef nemandi veldur vísvitandi eða vegna alvarlegs gáleysis skemmdum á eignum skólans eða annarra í skólanum, er hann bótaskyldur og málinu er vísað til skólastjóra.  Tyggjó er óæskilegt í skólanum.
Öryggi.  Allir eiga rétt á að finna til öryggis í skólanum. Framkoma og hegðun nemenda skal vera þannig að hún ógni ekki öryggi annarra. Mæti nemandi með eldfæri, hníf eða annað, sem getur skaðað hann sjálfan eða aðra í skólanum, verður það umsvifalaust tekið af honum og einungis foreldrar geta endurheimt slíka hluti.
Skólalóð. Við yfirgefum ekki skólalóðina á skólatíma. Vilji foreldrar heimila barni sínu að yfirgefa skólann eða skólalóðina á skólatíma, skal það tilkynnt til skólans í einstaka tilfellum, eða sótt um það skriflega á sérstökum eyðublöðum hjá ritara skólans eða á heimasíðu, ef það á að vera meginregla. Komi nemandi á hjóli, hjólaskautum, hjólabretti, sleða eða einhverjum öðrum farartækjum, skulu þau ekki notuð á skólalóðinni á skólatíma. Noti nemandi slíkt farartæki á skólalóð á hann það á hættu að það verði tekið af honum tímabundið.
Fatnaður.  Nauðsynlegt er að merkja allar yfirhafnir og skófatnað. Skólinn tekur ekki ábyrgð á því ef skór, fatnaður eða aðrar eigur nemenda hverfa úr skólanum.  Það sama gildir ef peningar eða önnur verðmæti hverfa t.d. úr yfirhöfnum eða töskum.  Reglan er að nemendur beri ábyrgð á eigum sínum í skólanum.

4.  Heilsa.  Nemendur hugsi vel um heilsu sína og temji sér að borða hollan og góðan mat.  Sælgæti og neysla gosdrykkja er bönnuð í skólanum á skólatíma, nema í sérstökum undantekningatilfellum að mati kennara.
Tóbak, áfengi og ólögleg vímuefni.  Verði nemandi staðinn að því að neyta tóbaks á skólatíma, á skemmtunum eða í ferðum á vegum skólans, er málinu vísað strax til umsjónarkennara og skólastjóra og foreldrar/forráðamenn látnir vita.  Brot geta varðað brottvísun úr skóla tímabundið.  Ef nemandi neytir áfengis eða ólöglegra vímuefna á skólatíma, á skemmtunum eða í ferðum á vegum skólans, er málinu strax vísað til skólastjóra, sem hefur samband við foreldra/forráðamenn og nemandanum er vikið úr skóla tímabundið.


Almenn viðbrögð við agamálum

Kennari ræðir við nemendahópinn um skólareglurnar og viðbrögð við agamálum og gerir hann samábyrgan fyrir góðum bekkjaranda og hvetjandi námsumhverfi. Kennari tekur á agamálum inni í bekk. 

1. stig
Ef það kemur í ljós að einstaklingur er ábyrgur fyrir truflun í kennslustund eða gerist á annan hátt brotlegur við skólareglurnar, ber kennara að ræða við nemandann einslega. Nemanda gefst tækifæri til að leiðrétta og bæta fyrir brot án frekari beitingar viðurlaga. Kennari, umsjónarkennari eða annar starfsmaður skólans geta aðstoðað nemandann við að leysa úr sínum málum.

2. stig
Breyti nemandi ekki hegðun sinni eða við ítrekuð brot þá lætur kennari foreldra/forráðamenn og umsjónarkennara vita um vandann og óskar eftir að þeir taki þátt í lausn hans. 

3. stig
Beri samstarf við foreldra/forráðamenn ekki árangur leitar kennari eftir samstarfi um lausn þess við deildarstjóra.  Hægt er að vísa máli nemandans til námsráðgjafa og/eða nemendaverndarráðs. Ef vísa þarf málum til sálfræðings skólans er slíkt gert með samþykki foreldra/forráðamanna. 

4. stig
Náist ekki árangur máls í meðförum deildarstjóra, skal vísa málinu til skólastjóra sem ræðir við nemandann og áminnir um leið og hvatt er til betri hegðunar.  Láti nemandi ekki skipast við áminningar skólastjóra, kallar skólastjóri foreldra/forráðamenn til fundar, þar sem reynt er að komast að sameiginlegri niðurstöðu um hvernig best er að leysa vandann.

5. stig
Ef ekki tekst að finna lausn á vanda nemandans og ef hegðun hans kemur í veg fyrir eðlilegt skólastarf getur skólastjóri vísað honum úr skóla tímabundið, meðan reynt er að finna lausn á vanda nemandans (sbr. 14. gr í lögum um grunnskóla nr. 91/2008). Skólastjóra ber að ræða við foreldra/forráðamenn áður en gripið er til slíkrar brottvísunar og hún tilkynnt til Fræðsluskrifstofu.
Ef ekki tekst að leysa vanda nemanda innan skóla á viku, vísar skólastjóri málinu til Fræðsluyfirvalda.  Fræðsluyfirvöld bera ábyrgð á að tryggja nemenda skólavist innan hæfilegs tíma frá brottvísun.


Ítrekuð brot
Ef nemandi brýtur ítrekað skólareglur, er ekki sjálfgefið að hann fái að fara í ferðalög á vegum skólans. Skólastjórnendur skulu gera nemanda og foreldrum/forráðamönnum grein fyrir slíkum viðurlögum og nemanda jafnframt gefinn kostur á að bæta hegðun sína  þannig að ekki þurfi að beita áður nefndum viðurlögum.

Skýr mörk
Við alvarleg agabrot getur komið til brottvísunar án áminningar. Komi brottvísun til framkvæmda eiga nemandi og forráðamenn hans rétt á andmælum samkvæmt 13. grein stjórnsýslulaga nr. 37/1993.


Skólareglurnar voru endurskoðaðar haustið 2009 og birtast í Skólanámskrá Heiðarskóla og á heimasíðu skólans www.heidarskoli.is