Frístundaskóli Heiðarskóla
Umsjónarmaður: Inga Ósk Ólafsdóttir, viðtalstími alla daga frá 12:30 - 13:00 í síma 864 6791
Sími: 864 6791
Ritari skólans: 420 4500
Í Heiðarskóla er boðið upp á Frístundarskóla fyrir nemendur í 1. – 4. bekk eftir að hefðbundnum skóladegi lýkur og starfar hann til kl. 16.00. Í Frístundaskólanum er skipulögð dagskrá þar sem hugað er að frjálsum leik, listum, fræðslu, hreyfingu ásamt næringu og hvíld. Starfsfólk skólans vinnur eftir hugmyndafræði Uppbyggingarstefnunnar. Frístundaskólinn hefur til afnota fjölnota stofu í rauða turni, stofu á skólalóð, sal skólans, sérgreinastofur og annað húsnæði sem þykir þörf á og hentar hverju sinni. Síðdegishressing er útbúin af Skólamat.
Þrír starfsmenn sjá um Frístundaskólann í vetur en í skólabyrjun voru um 40 nemendur skráðir í hann. Frístundaskólinn starfar einnig á svokölluðum skertum nemendadögum en er lokaður á starfsdögum og í vetrarleyfum skólans. Þegar sótt er um dvöl í Frístundaskólanum þarf að fylla út umsóknareyðublað sem liggur frammi á skrifstofu skólans en einnig er hægt að sækja um rafrænt. Sótt er um fyrir hvert skólaár í senn. Ef vistunartíma er breytt skal gera það fyrir 15. hvers mánaðar. Segja verður upp vist í Frístundaskólanum með tveggja vikna fyrirvara. Nauðsynlegt er að tilkynna veikindi og leyfi til umsjónarmanns eða skólaritara fyrir kl. 13 þá daga sem nemendur koma ekki í Frístundaskólann.
Gjaldkeri bæjarskrifstofu Reykjanesbæjar sér um innheimtu gjalda fyrir Frístundaskólann. Fast mánaðargjald er kr. 14.800 á mánuði. Tímagjald er kr. 315 en þá er einungis verið að greiða fyrir frístundavistunina. Síðdegishressing kostar kr. 125. Sótt er um fyrir hvert skólaár í senn (ágúst - júní).