Fréttir
Slóð:
Heiðarskóli í 2. sæti í Skólahreysti
30. apríl 2010

Lið Heiðarskóla varð í öðru sæti í Skólahreysti en úrslitakeppnin fór fram í Laugardalshöll í gærkvöldi. Heiðarskóli hefur gengið vel í keppninni hingað til en eins og kunnugt er sigraði lið skólans í keppninni á síðasta ári. Lið Heiðarskóla var skipað þeim Unnari Má Unnarssyni, Lilju Ingimarsdóttur, Arndísi Snjólaugu Ingvarsdóttur og Brynjari Frey Garðarssyni.

Skólahreysti er talsverð þrekraun þar sem keppt er ýmsum greinum er reyna á styrk og úthald keppenda s.s. armbeygjur, upphýfingar, fitnessgreip og dýfingar. Þá er einnig hraðaþraut.
Lindaskóli sigraði að þessu sinni með 67 stigum en Heiðarskóli fylgdi fast á eftir 63 stig.  Lágafellsskóli varð í þriðja sæti. Um þrjú þúsund manns mættu í Höllina til að fylgjast með keppninni sem einnig var sjónvarpað beint á RÚV

Í dag föstudag heiðraði svo skólinn keppendur og þjálfara í íþróttahúsinu. Fleiri myndir eru í myndasafni skólans.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 


 



Til baka