7. bekk EA var boðið á lögreglustöðina miðvikudaginn 17. mars. Jón Halldór faðir Ástu Sóllilju er lögreglumaður og var svo skemmtilegur að bjóða bekknum að koma í heimsókn. Bekkurinn fékk höfðinglegar móttökur. Heimsóknin byrjaði á því að
nemendur fengu að skoða aðstöðu lögreglunnar á Brekkustígnum. Eftir það lá leiðin á sjálfa lögreglustöðina þar sem Krissi lögga og Jón Halldór sýndu nemendum húsið. Nemendur fengu að prufa að fara í fangaklefa, skoða lögreglubíla, skoða búnað lögreglunnar og að lokum fengu þeir veitingar og fræðslu um starf lögreglunnar og forvarnir. Nemendur voru himinlifandi með þessa ferð enda ekki annað hægt eins og sést á myndum í myndasafni. Viljum við þakka þeim Jóni Halldóri og Krissa kærlega fyrir þessa frábæru heimsókn!
Til baka