Íslenskar verðlaunabækur
Athygli vakin á þeim bókum sem hlotið hafa Íslensku barnabókaverðlaunin og Barnabókaverðlaun menntaráðs Reykjavíkur.
Verðlaunabókum er stillt upp til sýnis og nemendur hvattir til að lesa taka og lesa þessar bækur.
Íslensku barnabókaverðlaunin
voru fyrst veitt árið 1985 og þótti bókin Emil og Skundi eftir Guðmund Ólafsson skara fram úr.
25 bækur hafa verið verðlaunaðar síðan þá en í tvö skipti voru engin verðlaun veitt því ekkert handrit þótti nógu gott.
Tveir höfundar hafa hlotið þessi verðlaun í tvígang: Guðmundur Ólafsson og Þorgrímur Þráinsson.
Íslensku barnabókaverðlaunin 2011 féllu Bryndísi Björgvinsdóttur í skaut fyrir bókina Flugan sem stöðvaði stríðið.
Barnabókaverðlaun menntaráðs Reykjavíkur
voru fyrst veitt 1973 en þau fengu Jenna og Hreiðar Stefánsson fyrir framlag sitt til barnabókaritunar.
37 bækur hafa verið verðlaunaðar síðan þá en í eitt skipti voru engin verðlaun veitt. Samhliða viðurkenningu fyrir frumsamið verk eru veitt verðlaun fyrir þýðingar á barnabókum.
Fimm höfundar hafa hlotið þessi verðlaun í tvígang: Páll H. Jónsson, Hreiðar Stefánsson, Guðrún Helgadóttir, Sigrún Eldjárn og Áslaug Jónsdóttir.
Barnabókaverðlaun menntaráðs Reykjavíkur 2011 hlaut Kristjana Friðbjörnsdóttir fyrir bókina Flateyjarbréfin.