Í ljósaskiptunum - Norræna bókasafnsvikan 2011
Norrænn húmor
er þemað á norrænu bókasafnsvikunni sem stendur yfir vikuna 14. - 20. nóvember.
Höfundar sem kastljósið beinist að í þetta skiptið eru Daninn Jakob Martin Strid (f. 1972) og Svíinn Mikael Niemi (f. 1959).
Fyrir unga fólkið og þá sem eldri eru verður lesið upp úr bók Niemi sem heitir Rokkað í Vittula og kom út árið 2000 og sem viðbót við þann texta má lesa úr Bjólfskviðu.
Fyrir yngstu kynslóðina verður lesið upp úr bók Strid, Í búðinni hans Mústafa.
Mælst er til þess að lesið verði upp úr þessum verkum mánudaginn 14. nóvember, stóra upplestrardaginn.
Hvergi í heiminum taka fleiri þátt í upplestri en hér þegar lesið er upp samtímis á 2000 stöðum úr völdum textum á mismunandi tungumálum.
Hér á bókasafni Heiðarskóla verður sett upp sýning í tengslum við þetta þema, Norrænn húmor.