Bókasafn
Slóð: Bókasafn

Bókasafnið er opið á skólatíma alla virka daga. Nemendur eru duglegir að fá bækur að láni en lánstími bóka eru tvær vikur.
Safnkosturinn er aðallega á rituðu máli og eru um 8500 bækur á skrá. Á bókasafninu eru einnig hljóðbækur, myndbönd, geisladiskar, tímarit, spil og kennsluleiðbeiningar.

Nemendur eru hvattir til að nýta sér aðstöðuna á safninu til að lesa bækur eða sinna verkefnavinnu.

Stefnt er að því að fá rithöfunda í heimsókn til að kynna bækur sínar.

Á dagskrá bókasafnsins skólaárið 2011- 2012 verður vakin athygli á nokkrum flokkum bóka og settar upp sýningar í tengslum við þá
Október Vakin athygli á rithöfundum og bókum sem hlotið hafa íslensk barnabókaverðlaun
Nóvember Norræn bókasafnsvika. Bryndís Bjarnadóttir rithöfundur kemur í heimsókn og kynnir bók sína: Flugan sem stöðvaði stríðið
Desember Jólasögur. Gestalesarar lesa fyrir yngstu börnin á aðventu
Janúar Galdrar, glæpasögur og hrollvekjur
Febrúar Bók verður bíó
Mars Fræðibækur fyrir börn og unglinga
Apríl Sögur, sagnir og rithöfundar frá Suðurnesjum
Maí Teiknimyndasögur
                                                                                                     (dagskrá safnsins er birt með fyrirvara um breytingar)

Á safninu gilda eftirfarandi reglur:
við göngum hljóðlega um safnið
við förum vel með þær bækur og gögn sem við fáum að láni
við göngum frá bókum og gögnum á rétta staði
við virðum lánstíma bóka og skilum á réttum tíma